22 episoder
- Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins skoðum við nokkur dæmi um afleiðingar dóms og laga í fornleifum. Hvað skilur útilegumannahelli frá öðrum hellum? Hvað voru margir teknir af lífi á Íslandi og fyrir hvað? Og hvað í andskotanum var Erfðahyllingin?
Arthur segir frá sniðugum útlaga í Eldvörpum og Snædís fjallar um 18. aldar morðmál sem tengist bæði Árbæjarsafni og Kópavogslæk. Útilegumenn, afturgöngur, sifjaspell og aftökur - hvað er hægt að biðja um meira?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
Þetta er síðasti þáttur Moldvarpsins í bili. Við þökkum fyrir samfylgdina - þangað til næst! - Hvers vegna eru lög og regla? Þessi fyrri hluti umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins fjallar um þing og þingminjar. Við lærðum flest í grunnskóla að örfáir karlar úr efri stétt hittust á þingum til að semja lög og fella dóma sem síðan rötuðu á skinnhandrit sem mörg eru enn varðveitt í dag. En fyrir utan handritin, hvaða minjar skilja þessir fundir eftir sig? Hvað er dómhringur? Og hvar í ósköpunum var Lögberg??
Arthur fer yfir hvernig goðorð virkuðu og hvernig kerfið var dauðadæmt frá byrjun en Snædís talar um dularfullt samband vatns og þingstaða. Þau fá síðan bæði hausverk við að reyna að greiða úr ráðgátu um sérstaklega dularfullan hól á Þingvöllum.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði - Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um klaustur á Íslandi kíkjum við austur í Fljótsdal og förum yfir rannsóknina á Skriðuklaustri sem er eina klaustrið sem grafið hefur verið upp og rannsakað í heild sinni. Hvað fannst í rústum klaustursins? Hvað segja fornleifarnar okkur um starfsemi klaustra á Íslandi? Hvað fannst í klausturgarðinum sem kom öllum á óvart?
Snædís fjallar um fornar lækningaraðferðir sem innihalda refagall, töfrasteina og að sleikja tær. Arthur tjáir sig um vonbrigðin sem fylgja því að finna reiknimyntir. Rætt um fjölbreytt notagildi kvikasilfurs, kapellu á móti álverinu í Straumsvík og besta hlaðborð landsins.
ATH! Fyrir viðkvæma: smá grafísk umræða um líkamsleifar, sjúkdóma, áverka og beinagrindur frá 37:53 - 59:34
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði - “Ora et labora” er mottó þessa fyrri hluta okkar um klaustur á Íslandi og helstu rannsóknir á þeim. Klausturtími Íslands var frá 1030 – 1554 (anno domini) eða heil 524 ár og því af nógu að taka! Hvað er klaustur og hvað fer þar fram? Voru klaustur á Íslandi frábrugðin öðrum klaustrum? Hvernig tengjast rómverskir flísaleggjarar íslensku messuhaldi? Og hvað í ósköpunum eru tveir hlutar fjórðungs smjörs mikið?
Hollenskur biskup stígur á land í Viðey með vaxtöflur og Gleraugna-Pétur smíðar kamar í kirkjugarði. Snædís segir okkur frá Kirkjubæjarklaustri og valdeflandi nunnu sem gerði nákvæmlega það sem henni sýndist. Arthur segir frá upplifun sinni við að leita að klaustri á Þingeyrum þar sem hann fann aðallega ullarsokka og bíldekk.
Hljóðið fyrstu 6 mínúturnar er smá slæmt en er gott restina af þættinum.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði - Í þessum seinni hluta höldum við áfram þar sem frá var horfið um fornleifarannsóknir á Bergþórshvoli og á Njáluslóðum.
Hvað fann Kristján Eldjárn á Bergþórshvoli? Hvernig líta brunarústir út eftir 1000 ár? Svífur andi Hallgerðar langbrókar yfir Sæbrautinni? Mjaltakollur og fjósaskófla Njáls og Bergþóru. Gunnar á Hlíðarenda, Hjörtur bróðir hans og flottasti servíettuhringur Íslandssögunnar. Eru skilaboð Njálu þau að þeirra bíða hræðileg örlög sem hvorki hlusta á né virða konur?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
Flere Historie podcasts
Trendige Historie podcasts
Om Moldvarpið
Hlaðvarp um íslenska fornleifafræði. Fornleifafræðingarnir Arthur Knut Farestveit og Snædís Sunna Thorlacius fjalla vítt og breitt um íslenskar fornleifar, minjar og menningarsögu. Í hverjum þætti er ákveðið viðfangsefni tekið fyrir og sett í samhengi við samtímann, bæði fornleifanna og fornleifafræðinganna.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
Upptökur og hljóðvinnsla: Sindri Snær Thorlacius
Þemalag: Gísli Magnús Torfason og Helga Ágústsdóttir
Logo: Sigtýr Ægir Kárason
Hljóðbrot: Safn RÚV
Podcast-webstedLyt til Moldvarpið, Kampen om historien og mange andre podcasts fra hele verden med radio.dk-appen

Hent den gratis radio.dk-app
- Bogmærke stationer og podcasts
- Stream via Wi-Fi eller Bluetooth
- Understøtter Carplay & Android Auto
- Mange andre app-funktioner
Hent den gratis radio.dk-app
- Bogmærke stationer og podcasts
- Stream via Wi-Fi eller Bluetooth
- Understøtter Carplay & Android Auto
- Mange andre app-funktioner


Moldvarpið
Scan koden,
download appen,
begynd at lytte.
download appen,
begynd at lytte.

