Spring til indhold
PodcastsKunstEftirmál

Eftirmál

Tal
Eftirmál
Seneste episode

34 episoder

  • Eftirmál

    Hryðjuverkamálið

    28.07.2026 | 1 t. 43 min.
    Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum við einn sakborninganna og lögmann hans í þættinum. Málið er eitt umfangsmesta, umtalaðsta og umdeildasta sakamál sem komið hefur upp hér á landi.
    Samsetning: Adelina Antal
    Styrktaraðilar Eftirmála eru:
    - Birgisson
    - Góa 
    - Húðfegrun 
    - Scandi Home
  • Eftirmál

    Leiðangur Johns Snorra á K2

    22.07.2026 | 1 t. 19 min.
    Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Einar Bárðarson, vinur Johns Snorra, fer yfir málið með okkur og útskýrir af hverju hann vill halda minningu vinar síns á lofti og hvers vegna menn leggja í slíka hættuför. 
    Samsetning: Adelina Antal
    Styrktaraðilar Eftirmála eru:
    - Birgisson
    - Góa 
    - Húðfegrun
  • Eftirmál

    Ashley Madison og Vodafone-lekinn

    13.07.2026 | 57 min.
    Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison gerðar opinberar og Ice Hot 1 kom fram á sjónarsviðið. Atli Fannar Bjakason blaðamaður þekkir málin vel og fer með okkur yfir þau í þættinum. 
    Samsetning: Adelina Antal
    Styrktaraðilar Eftirmála eru:
    - Sebastian hárvörur
    - Birgisson
    - Scandi Home
    - Góa 
    - Húðfegrun
  • Eftirmál

    Krýsuvíkurmálið

    07.07.2026 | 1 t. 12 min.
    Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þessa sorglega máls og fer fer yfir það í þættinum. 
    Samsetning: Adelina Antal
    Styrktaraðilar Eftirmála eru:
    - Birgisson
    - Scandi Home
    - Góa 
    - Sebastian hárvörur 
    - Bliss
    - Húðfegrun
  • Eftirmál

    Morðið á Hannesi Þór Helgasyni

    01.04.2026 | 1 t. 29 min.
    Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrtur en hann fer yfir málið með okkur og lýsir þeim gríðarlega mótandi áhrifum sem það hafði á líf hans.
Flere Kunst podcasts
Om Eftirmál
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
Podcast-websted

Lyt til Eftirmál, Vin for begyndere og mange andre podcasts fra hele verden med radio.dk-appen

Hent den gratis radio.dk-app

  • Bogmærke stationer og podcasts
  • Stream via Wi-Fi eller Bluetooth
  • Understøtter Carplay & Android Auto
  • Mange andre app-funktioner
Eftirmál: Podcasts i samme familie